Borgarleikhúsið

Sólveig Arnarsdóttir

Sólveig Arnarsdóttir útskrifaðist frá Ernst Busch leiklistarskólanum í Berlín árið 2000 og hefur síðan unnið mikið bæði í Þýskalandi og á Íslandi. Hún hefur starfað jafnt á leiksviði sem í kvikmyndum og sjónvarpi og síðustu ár verið fastráðin við hið fræga Volksbühne leikhús í Berlín. Hún hóf störf við Borgarleikhúsið haustið 2021 og hefur leikið í Níu lífum, Emil í Kattholti og Ein komst undan. Sólveig hefur hlotið fjölda tilnefninga og verðlaun fyrir leik sinn í kvikmyndum og á sviði, bæði innanlands og erlendis.