Að tjalda­baki - ný við­burðaröð í vet­ur

29. september 2026

Að tjaldabaki er ný röð viðburða hjá Borgarleikhúsinu í vetur þar sem leikstjórar sýninga ásamt listrænum stjórnendum taka á móti leikhúsgestum með kynningu áður en sýning hefst. Leikhúsgestum sýninga á þeim dagsetningum sem viðburður fer fram er frjálst að mæta. Kynningin fer fram á veitingasvæði Borgarleikhússins og hefst um einni og hálfri klukkustund fyrir sýningu. Leikhúsgestum býðst að kaupa léttan kvöldverð.

Að lokinni sýningu gefst gestum kostur á að taka þátt í umræðum með leikstjóra og völdum gestum í afslöppuðu umhverfi á veitingasvæði leikhússins.

Á þessum viðburðum fá gestir einstaka innsýn í sköpunarferli sýningarinnar; allt frá hugmyndavinnu, framkvæmd og að sviðssetningu.

Fyrsti viðburðurinn fer fram fyrir sýningu á Svikasögum, sunnudaginn 4. október.

Næstu dagsetningar verða kynntar fljótlega.

Að tjaldabaki: Svikasögur

Dagskrá sunnudaginn 4. október

18:30-19:15
Velkomin „Að tjaldabaki"

María Reyndal handritshöfundur og leikstjóri tekur á móti gestum á veitingasvæði ásamt Evu Signý Berger leikmynda- og búningahönnuði.
Í upphafi gefst gestum kostur á að kaupa sér léttan kvöldverð til að njóta á meðan kynningu stendur (æskilegt að panta fyrirfram).
Á þessum viðburði fá gestir einstaka innsýn í sköpunarferli sýningarinnar; allt frá hugmyndavinnu, framkvæmd og að sviðssetningu.

Sýningin hefst klukkan 20:00 og er gert ráð fyrir því að kynning fyrir sýningu standi frá 18:30-19:15. Við biðlum til leikhúsgesta að mæta tímanlega á viðburðinn.

22:30-23:00
Spurningar og spjall

Að lokinni sýningu gefst gestum kostur á að taka þátt í umræðum með Maríu og Evu og völdum gestum í afslöppuðu umhverfi á veitingasvæði leikhússins.

Skoða/kaupa miða á Svikasögur

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo