Stóra svið

Svika­sög­ur

Upp­lýs­ing­ar

Svið

Stóra svið

Verð

8.200 kr.

Frumsýning

19. september 2026

Næstu sýningar

2. sýning24. september kl. 20:00
3. sýning27. september kl. 20:00
4. sýning01. október kl. 20:00
Viðburður fyrir sýningu04. október kl. 20:00
Allar sýningar

Svika­sög­ur

Glænýtt verk eftir Maríu Reyndal

Árið er 1984 og Nanna stendur á þeim ómótstæðilegu og óbærilegu mörkum þess að vera barn og unglingur, hún er líka milli tveggja elda þegar foreldrar hennar takast á og toga hana í ólíkar áttir. Hvernig er hægt að treysta fullorðnu fólki sem segir eitt en gerir annað? Hvort er raunverulega verra, að stela sígarettum eða halda framhjá? 

Í Svikasögum heldur María Reyndal áfram að vinna með stórskemmtilegar en flóknar fjölskyldusögur sem eru orðnar hennar aðalsmerki eftir velgengni Er ég mamma mín og Með Guð í vasanum.

Hér gefur María okkur innsýn í sögu unglingsstúlku á níunda áratugnum, hvers líf fer á hliðina þegar heimilisfaðirinn hverfur óvænt af sögusviðinu. Í átökunum sem fylgja klofnar fjölskyldan og ekkert verður aftur samt. Inn í frásögnina flækjast ættboginn allur, besta vinkonan í næsta húsi, rottugangur, túrbankellingar, óperusöngur og níundi áratugurinn í allri sinni dýrð. Með sinni einstöku næmni fyrir mannlegum breyskleika og kómískri sýn á lífið, dregur María upp grátbroslega mynd af sundrungu í kjarnafjölskyldu.

María er þekkt fyrir sviðsverk sín sem og afrek á skjánum en hún er ein af höfundum gamanþáttanna vinsælu, Stelpnanna, en skrifaði einnig og leikstýrði verðlaunaþáttunum Mannasiðum. Þá var hún einnig einn af handritshöfundum Ástríðar og einn af leikstjórum Verbúðarinnar.

María leiðir magnaðan leikhóp og óhætt er að búast við hlátrasköllum í bland við hjartaskerandi andartök.

Upplýsingar um viðkvæmt innihald og áreiti má finna hér.

Myndbönd

Ljósmyndir

Listrænir stjórnendur

Höfundur og leikstjóri

María Reyndal

Aðstoðarleikstjóri

Egill Andrason

Leikmynd og búningar

Eva Signý Berger

Lýsing

Pálmi Jónsson

Hjóðmynd

Þorbjörn Steingrímsson

Dramatúrgar

Maríanna Clara Lúthersdóttir / Æsa Guðrún Bjarnadóttir

Sviðshreyfingar

Ernesto Camilo Valdes

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo