Opið fyr­ir um­sókn­ir í pruf­ur fyr­ir söng­leik­inn Þeg­ar Trölli stal jól­un­um

10. apríl 2026

Hver bjargar jólunum í Borgarleikhúsinu?

Fjölskyldusöngleikurinn Þegar Trölli stal jólunum verður frumsýndur í nóvember næstkomandi á Stóra sviði Borgarleikhússins. Leikstjóri sýningarinnar er Valur Freyr Einarsson og ásamt glæsilegum hópi leikara mun stór barnahópur fara með hlutverk í sýningunni. Borgarleikhúsið auglýsir eftir kraftmiklum og skapandi krökkum fæddum á árunum 2012-2017 til að taka þátt í þessu töfrandi jólaævintýri.

Þau sem þekkja söguna um Trölla vita að börnin gegna lykilhlutverki í ævintýrinu sígilda. „Við upplifum söguna í gegnum þau. Ævintýrið um Trölla sem stelur jólunum lifnar ekki við án barna sem elska jólin” segir Valur Freyr Einarsson, leikstjóri söngleiksins. „Við leitum að kraftmiklum og fjölbreyttum hópi barna sem geta sungið og leikið og hafa ríkt ímyndunarafl. Við hvetjum börn af öllum kynjum og ólíkum uppruna til að sækja um í prufunum“.

Opið er fyrir skráningar til og með 20. apríl og prufurnar fara fram í Borgarleikhúsinu á bilinu 1.- 21. maí. Æfingar hefjast 26. maí og frumsýning er í nóvember 2026.

Söngleikurinn Þegar Trölli stal jólunum er byggður er á hinu sívinsæla ævintýri Dr. Seuss frá árinu 1957. Sagan hefur verið útfærð á ótal vegu en þekktasta útfærslan er líklega kvikmyndin How the Grinch stole Christmas sem kom út árið 2000 og skartaði gamanleikaranum og stjórstjörnunni Jim Carrey í hlutverki Trölla (Grinch). Flestir Íslendingar þekkja söguna og er kvikmyndin orðin rótgróin jólahefð á mörgum heimilum.

Þegar Trölli stal jólunum verður frumsýndur í nóvember 2026 og verður það Evrópufrumsýning á söngleiknum.

Hægt er að skrá sig hér!

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo