Yfir 11.000 manns búin að tryggja sér miða á Þeg­ar Trölli stal jól­un­um!

7. maí 2026

Forsala á fjölskyldusöngleikinn Þegar Trölli stal jólunum fór fram í síðustu viku og sló hún öll fyrri met í Borgarleikhúsinu. Rúmlega 11.000 manns hafa tryggt sér miða á sýninguna, en það samsvarar um tuttugu uppseldum sýningum!

Ljóst er að mikill spenningur er fyrir þessu sígilda jólaævintýri, sem verður frumsýnt í byrjun nóvember næstkomandi á Stóra sviðinu. Um er að ræða stórsýningu með grípandi lögum, töfrandi sjónrænni upplifun og frábærum leikarahópi.

Þegar Trölli stal jólunum verður aðeins sýnd í takmarkaðan tíma yfir hátíðarnar og eru því líkur á að færri muni komast að en vilja.

„Þessar viðtökur eru með miklum ólíkindum og langt umfram það sem ég átti von á,” segir Valur Freyr Einarsson, leikstjóri söngleiksins. „Mér fannst það mikil bjartsýni af leikhúsinu að setja jólasöngleik í forsölu að vori, fólk væri að hugsa um vorverkin í garðinum og dusta rykið af grillinu á þessum árstíma. En ég hafði sannarlega rangt fyrir mér, það er greinilega mikil stemmning fyrir Trölla og við lofum skemmtilegri og töfrandi jólasýningu fyrir alla fjölskylduna!”

Æfingar fyrir söngleikinn hefjast í maí og við getum ekki beðið eftir að bjóða leikhúsgesti velkomna á þessa hlýju og heillandi sögu sem mun stækka hjörtu allra.

Hér er hægt að tryggja sér miða á Þegar Trölli stal jólunum.

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo