Leikskrá

Djöflar

Djöflar eru 730. frumsýning Leikfélags Reykjavíkur

Frumsýning 9. október 2026 á Nýja sviði Borgarleikhússins

Sýningaréttur: Lars Natten Norén AB

Sýningartími er tvær klukkustundir. Eitt hlé.

Ljósmyndir: Hörður Sveinsson
Ljósmyndir eru teknar og æfingum og er því ekki endanleg heimild um sýninguna.

Í sýningunni er m.a. notast við háværa tónlist. Nánari upplýsingar um viðkvæmt innihald og áreiti má finna hér.

Leikarar

Frank: Hilmir Snær Guðnason

Katarína: Vala Kristín Eiríksdóttir

Jenna: Íris Tanja Flygenring

Tómas: Haraldur Ari Stefánsson

Listrænir stjórnendur

Höfundur: Lars Norén

Leikstjóri: Stefán Jónsson

Þýðing: Hlín Agnarsdóttir

Leikmynd: Börkur Jónsson

Búningar: Helga I. Stefánsdóttir

Lýsing: Gunnar Hildimar Halldórsson

Hljóðmynd: Ísidór Jökull Bjarnason

Framleiðslu- og sýningarstjóri: Owen Douglas Fiene

Listrænir ráðunautar: Egill Andrason og Magnús Þór Þorbergsson

Starfsnemi: Iðunn Gígja Kristjánsdóttir

Sérstakar þakkir

Unnar Þór Lárusson, Steinlausnir
Ólafur Björn Benónýsson, ÍSFELL 
Guðbrandur Árni Ísberg 
Genki Instruments
Soffía Steingrímsdóttir
Þorleifur Halldórsson hjá HD

Tónlist í sýningunni

Lars Norén

Um höfundinn

Lars Norén (1944-2021) var eitt afkastamesta og áhrifamesta samtímaleikskáld Norðurlandanna. Hann skrifaði vel yfir hundrað leikrit, auk ljóða og prósa, og er af mörgum talinn arftaki Augustar Strindberg. Hann hlaut margvísleg verðlaun fyrir störf sín, meðal annars Norrænu leikskáldaverðlaunin, Norrænu verðlaun sænsku akademíunnar og heiðursverðlaun Stokkhólmsborgar.

Þekkt leik­rit og ís­lensk­ar upp­setn­ing­ar

Verk Noréns hafa verið sýnd víða um heim, þar á meðal í Evrópu, Asíu og Suður-Ameríku. Eitt þekktasta verk Nórens er Nóttin er móðir dagsins, samið árið 1982, en það hefur aldrei verið sett upp á Íslandi. Hér á landi setti Alþýðuleikhúsið upp Hræðilega hamingju árið 1992 og Þjóðleikhúsið Seið skugganna 1993 og Laufin í Toscana 2001. Leikfélag Reykjavíkur sýndi Bros úr djúpinu árið 1983 og nú, rúmum fjörutíu árum síðar, Djöfla.

Stefán Jónsson, Valdimar Örn Flygenring og Nanna Kristín Magnúsdóttir. Laufin í Toscana í Þjóðleikhúsinu. Mynd: Grímur Bjarnason

Viss­ir þú að....

fyrir tuttugu og fimm árum síðan léku Stefán Jónsson (leikstjóri sýningarinnar) og Valdimar Örn Flygenring (faðir Írisar Tönju, leikkonu í sýningunni) saman Laufin í Toscana eftir Lars Norén?

Valdimar Örn Flygenring og Stefán Jónsson. Laufin í Toscana í Þjóðleikhúsinuárið 2001.

NÓRENÆSKA

Verk Norén eru óneitanlega lituð af stormasamri æsku. Hann ólst upp á hóteli í Genarp í Svíþjóð sem foreldrar hans ráku en faðir hans glímdi við alvarlegan alkóhólisma og móðir hans við líkamleg og andleg veikindi. Norén bjó á gistiheimilinu til sextán ára aldurs en flutti frá foreldrum sínum til Stokkhólms við fyrsta tækifæri. Þar vann hann í Konunglega leikhúsinu og hjá dagblaðinu Dagens Nyheter. Eftir þriggja ára dvöl í Stokkhólmi lést móðir hans úr krabbameini. Það hafði djúpstæð áhrif á unga skáldið sem í kjölfarið dvaldi í sjö mánuði á geðdeild.


Mörg leikrit hans draga upp þungbúnar en sortuspaugilegar myndir af hversdagslífi borgarastéttarinnar. Norén sýndi persónunum sínum enga miskunn og eru þær flestar fastar í eiturklístruðum og fúkkafirrtum samböndum. Höfundareinkenni Norén eru svo sterk að nafn hans hefur umbreyst í sænskt forskeyti sem lýsir samblöndu kvíða, dapurleika, ofdrykkju, taugatrylltrar spennu og skammar. Til dæmis er Norénjul („Nórenjól“) þekkt samsetning af þessu tagi sem lýsir síður en svo ánægjulegri hátíð.

Viss­ir þú að....

Árið 1986 leikstýrði Carsten Brandt kvikmyndinni Demoner, byggðri á Djöflum Noréns, tveimur árum eftir frumsýningu leikritsins í Borgarleikhúsi Stokkhólms.

7:3 OG MALEXANDER-MORÐIN

Viss­ir þú að....

Atburðarrás 7:3 og Malexanders morðanna var tekin fyrir í sænsku þáttaröðinni Smärtpunkten sem kom út árið 2024?

Viðtal við þýðanda

Hlustaðu á útvarpsviðtal við Hlín Agnarsdóttur, þýðanda Djöfla, um téða atburði í Lestinni.

Hlusta á viðtal

Hilm­ir Snær Guðna­son

Hilmir Snær Guðnason útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1994 og hefur síðan leikið fjöldamörg hlutverk á flestum sviðum landsins auk þess að eiga að baki farsælan feril í kvikmyndum og sjónvarpi. Hilmir hefur síðustu ár starfað jöfnum höndum sem leikari og leikstjóri og leikstýrði síðast Óskalandi í Borgarleikhúsinu auk þess sem hann fór með hlutverk í Mátulegum, Lúnu og Ketti á heitu blikkþaki. Hilmir hefur hlotið fjöldamörg verðlaun og viðurkenningar fyrir störf sín svo sem Grímuna, Edduna, Menningarverðlaun DV og Stefaníustjakann.

Vala Krist­ín Ei­ríks­dótt­ir

Vala Kristín Eiríksdóttir útskrifaðist úr leikaranámi frá Listaháskóla Íslands vorið 2015 og var fastráðin sama ár við Borgarleikhúsið. Meðal nýlegra verka sem Vala hefur leikið í má nefna Frost í Þjóðleikhúsinu og Allt sem er frábært, Prinsessuleikana og Þetta er Laddi í Borgarleikhúsinu. Hún hlaut Grímuverðlaun sem besta leikkona í aukahlutverki fyrir leik sinn í Matthildi. Vala er einn framleiðenda, handritshöfunda og leikara í sjónvarpsþáttunum Venjulegt fólk.

Íris Tanja Flygenring

Íris Tanja Flygenring útskrifaðist af leikaradeild LHÍ vorið 2016. Hún hefur frá útskrift látið til sín taka með sjálfstæðu leikhúsunum og má þar nefna Blóðugu kanínuna með Fimbulvetri og Samdrætti með leikhópnum Silfru. Hún æfði ballet með Listdansskóla Íslands en hefur einnig komið fram í kvikmyndum og sjónvarpi og má þar nefna Fanga, Ófærð og Kötlu. Af verkefnum hennar í Borgarleikhúsinu má nefna Eitraða litla pillu, Kjarval og MoulinRouge. Hún hlaut Grímuverðlaunin sem besta leikkona í aukahlutverki árið 2023.

Har­ald­ur Ari Stef­áns­son

Haraldur Ari Stefánsson útskrifaðist frá The Royal Central School of Speech and Drama árið 2015. Hann var fastráðinn hjá Borgarleikhúsinu árið 2017 og meðal nýlegra sýninga hans þar má nefna Kjarval, Níu líf og Eitraða litla pillu. Hann hefur farið með hlutverk í kvikmyndum, t.d. Óróa og Hvítur, hvítur dagur en einnig komið fram í sjónvarpi, tónlistarmyndböndum og útvarpi. Haraldur er einnig tónlistarmaður og hefur m.a. starfað með hljómsveitinni Retro Stefson.

Listrænir stjórnendur
Stefán Jónsson

Stefán Jónsson útskrifaðist frá Guildhall School of Music and Drama í Lundúnum árið 1983. Hann hefur leikið fjölda hlutverka á leiksviði, í kvikmyndum og sjónvarpi en hefur einnig verið mikilvirkur leikstjóri um árabil. Þá hefur hann starfað við leiklistarkennslu en hann gegndi stöðu prófessors við sviðslistadeild LHÍ frá 2008-2018. Af nýlegum leikstjórnarverkefnum hans við Borgarleikhúsið má nefna sýningarnar Á eigin vegum, Lúnu og Sýslumann Dauðans. Stefán hefur hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar þ.á.m. tvisvar hlotið Grímuna fyrir leikstjórn.

Helga I. Stefánsdóttir

Helga I. Stefánsdóttir útskrifaðist úr leikmyndadeild L’Accademia di BelleArti í Róm árið 1989. Frá þeim tíma hefur hún gert búninga og leikmyndir við fjölmargar uppsetningar hjá Leikfélagi Reykjavíkur, í Þjóðleikhúsinu, Íslensku óperunni, Íslenska dansflokknum og sjálfstæðum leikhópum. Hún hefur einnig hannað búninga og leikmyndir fyrir fjölmargar íslenskar kvikmyndir, nokkrar sjónvarpsþáttaraðir á borð við Vigdísi og Dimmu og sjónvarpsverka af ýmsu tagi fyrir Stöð 2 og RÚV. Auk þess hefur hún verið yfirmaður búningadeildar í nokkrum stórum erlendum verkefnum á Íslandi og unnið við tugi auglýsinga fyrir alþjóðleg fyrirtæki. Hún hefur margoft verið tilnefnd til Grímu- og Edduverðlaunanna og hlaut Grímuna fyrir Himnaríki og helvíti og Eddur fyrir Brúðgumann, Djúpið og Vigdísi.

Börkur Jónsson

Börkur Jónsson útskrifaðist úr Skúlptúrdeild MHÍ 1999 og lauk MA gráðu í myndlist frá Listaakademíunni í Helsinki árið 2002. Hann hefur starfað í leikhúsi, kvikmyndum og auglýsingum, haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum víða um heim. Hann hefur unnið með Vesturporti frá stofnun þess og hannað fjölda leikmynda fyrir leikhópinn. Meðal nýlegra leikmynda Barkar fyrir Borgarleikhúsið má nefna Lúnu, Elly og Óskaland. Hann vann síðast með Stefáni Jónssyni í sýningunni 7 ævintýri um skömm í Þjóðleikhúsinu. Hann hefur hlotið ótal verðlaun og viðurkenningar fyrir störf sín, bæði hérlendis og erlendis.

Gunnar Hildimar Halldórsson

Gunnar Hildimar Halldórsson hefur starfað sem ljósatæknimaður og hönnuður frá árinu 2011. Hann vann í Hörpu Tónlistarhúsi og sinnti þar lýsingarhönnun á fjölbreyttum viðburðum frá óperuuppfærslum til Iceland Airwaves tónlistarhátíðarinnar. Hann hefur einnig starfað sjálfstætt m.a. á Aldrei fór ég suður hátíðinni, fyrir Íslenska dansflokkinn, Fjallabræður ofl. Hann hóf störf hjá Borgarleikhúsinu árið 2022 og meðal sýninga sem hann hefur hannað lýsingu fyrir eru Fjallabak og Galdrakarlinn í OZ, en hann var tilnefndur til Grímunnar fyrir þær sýningar.

Ísidór Jökull Bjarnason

Ísidór Jökull Bjarnason útskrifaðist með BA gráðu í Tónsmíðum nýmiðla frá Listaháskóla Íslands árið 2021. Hann hefur verið sjálfstætt starfandi tónskáld og hljóðmaður síðustu árin en á meðal verka sem Ísidór hefur unnið að hér í Borgarleikhúsinu má nefna Mátulega, Með Guð í vasanum og Sýslumann Dauðans. Hann hlaut grímutilnefningu fyrir hljóðmynd ársins fyrir sýningarnar Lúnu og Ég hleyp.

Aðstandendur sýningar

Búningagerð

Geirþrúður Einarsdóttir
Ingunn Lára Brynjólfsdóttir
Leila Arge
Maggý Dögg Emilsdóttir
Stefanía Adolfsdóttir

Leikgervi

Tinna Ingimarsdóttir
Hanna Louisa Guðnadóttir
Hafdís Pálsdóttir
Harpa Finnsdóttir
Kristín Elísabet Kristínardóttir

Leikmunagerð

Fanney Sizemore
Frosti Friðriksson

Leikmyndagerð

Ásdís Hanna Gunnhildar Guðnadóttir – smiður og málari
Elísabet Arna Valsdóttir – málari
Elsa Jónsdóttir - málari
Finnur G Olguson - smiður
Gabriel Backman Waltersson – smiður og málari
Unnur Sif Geirdal – smiður og málari
Viðar Jónsson – smiður

Hljóð- og ljósakeyrsla

Jens Þórarinn Jónsson

Heim

Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500

Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is

Jafnlaunavottun 2023-2026
Jafnvægisvog FKA 2025
Framúrskarandi fyrirtaeki 2025

Miðasalan er opin 12-17 alla virka daga og 12-20 á sýningardögum.

568 8000

Takk fyrir stuðninginn

Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.

reykjavíkurborg logo
orkusalan logoölgerðin logo