Leikskrá
Svikasögur er 730. frumsýning Leikfélags Reykjavíkur
Frumsýning 19. september 2026 á Stóra sviði Borgarleikhússins
Sýningartími er tvær klukkustundir. Eitt hlé.
Ljósmyndir: Hörður Sveinsson
Ljósmyndir eru teknar og æfingum og er því ekki endanleg heimild um sýninguna.
Í sýningunni er m.a. notast við hættulausar leikhússígarettur, blikkandi ljós og háværa tónlist. Nánari upplýsingar um viðkvæmt innihald og áreiti má finna hér.

Nanna eldri: Berglind Alda Ástþórsdóttir
Nanna yngri: Rebecca Lív Biraghi
Árni: Hákon Jóhannesson
Sæunn: Birna Pétursdóttir
Óli: Mikael Kaaber
Gerður: Viktoria Dalitso Þráinsdóttir
Gugga: Katla Margrét Þorgeirsdóttir
Flosi: Vilhelm Neto
Höfundur og leikstjóri: María Reyndal
Leikmynd og búningar: Eva Signý Berger
Lýsing: Pálmi Jónsson
Hljóðmynd: Þorbjörn Steingrímsson
Leikgervi: Guðbjörg Ívarsdóttir
Grímur: Harpa Finnsdóttir
Dramatúrg: Maríanna Clara Lúthersdóttir
Framleiðslu- og sýningarstjóri: Vigdís Perla Maack
Aðstoðarleikstjóri: Egill Andrason
Aðstoð við sviðshreyfingar: Ernesto Camilo Aldazabal Valdes
Söngþjálfun: Gísli Magna og Hildigunnur Einarsdóttir
Umsjón barna: Helga Hafdal Jónsdóttir og Diljá Pétursdóttir
Starfsnemi: Arna Tryggvadóttir
Sérstakar þakkir
Gunnþórunn Guðmundsdóttir
Helga Salvör Jónsdóttir
Ingi Þór Þórhallsson
Iðunn Eldey Stefánsdóttir
Karl Petersson
Katla Njálsdóttir
Orri Vésteinsson
Æsa Guðrún Bjarnadóttir
María Reyndal útskrifaðist með BA-gráðu frá The Central School of Speech and Drama í London árið 1997 og lauk meistaranámi frá Háskólanum í Auckland á Nýja-Sjálandi árið 2010. Hún starfar jöfnum höndum sem höfundur og leikstjóri í leikhúsi og sjónvarpi. Meðal sviðsverka hennar má nefna Sóley Rós ræstitækni, sem hún samdi ásamt Sólveigu Guðmundsdóttur auk þess sem hún leikstýrði verkinu sem frumsýnt var í Tjarnarbíói árið 2016 og hlaut Grímuverðlaunin 2017 sem leikrit ársins. Hún er höfundur og leikstjóri verkanna Er ég mamma mín? (2020) og Með Guð í vasanum (2023), sem bæði voru sýnd í Borgarleikhúsinu. Þá samdi hún Prinsinn ásamt Kára Viðarssyni sem var frumsýnt í Frystiklefanum á Rifi árið 2022 í samstarfi við Þjóðleikhúsið. Meðal leikstjórnarverkefna Maríu má nefna Línu langsokk í Borgarleikhúsinu (2003), Ökutíma hjá Leikfélagi Akureyrar (2007), Finnska hestinn (2010) og Upphaf (2020) í Þjóðleikhúsinu og Hauk og Lilju í Ásmundarsal (2021). Hún er einnig handritshöfundur og leikstjóri sjónvarpsmyndarinnar Mannasiða, páskamynd RÚV árið 2018, sem hlaut Edduverðlaunin sem leikið sjónvarpsefni ársins. María var jafnframt einn þriggja leikstjóra Verbúðarinnar, var meðal höfunda sjónvarpsþáttanna Stelpurnar og Ástríður og var yfirhöfundur og leikstjóri Áramótaskaupsins 2024.


Berglind Alda Ástþórsdóttir útskrifaðist af leikarabraut LHÍ vorið 2024. Af verkefnum hennar í leikhúsi má nefna söngleikinn Storm í Þjóðleikhúsinu og Tóma hamingju með Gaflaraleikhúsinu, en hún hlaut Grímutilnefningar fyrir þau hlutverk. Hún lék Hörpu Sjöfn í uppfærslu Afturámóti á Með allt á hreinu auk þess að hafa leikið í kvikmyndunum Ljósbrot og Hvar er draumurinn og sjónvarpsþáttunum Húsó og Venjulegt fólk. Af nýlegum verkefnum hennar í Borgarleikhúsinu má nefna Þetta er Laddi, Galdrakarlinn í Oz og Hamlet, en Berglind hlaut Grímuverðlaun fyrir hlutverk sitt sem Ófelía í þeirri sýningu.

Rebecca Lív Biraghi er nemandi í Leiklistarskóla Borgarleikhússins og hefur komið víða við á sviði og í sjónvarpi þrátt fyrir ungan aldur. Hún sá um kosningaumfjöllun Krakkafrétta á RÚV 2024, lék aðalhlutverkið í stuttmyndinni Óskahálsmenið og fer með hlutverk í þáttunum Flóðið, sem eru í vinnslu. Hún hefur á undanförnum árum komið fram í Krakkaskaupinu, á verðlaunahátíðinni Sögum og í Stundinni okkar. Rebecca Lív lék í sýningu Gaflaraleikhússins á Langelstur að eilífu og lék Sabínu í Fíasól gefst aldrei upp í Borgarleikhúsinu.

Hákon Jóhannesson útskrifaðist af leikarabraut Listaháskóla Íslands vorið 2018. Eftir útskrift starfaði hann við Þjóðleikhúsið þar sem hann lék í sýningum á borð við Framúrskarandi vinkonu, Ástu og Draumaþjófnum. Einnig hefur hann leikið með Leikfélagi Akureyrar og komið fram í sjónvarpi og kvikmyndum. Af sjónvarpsverkefnum hans má nefna Verbúðina og Aftureldingu. Af nýlegum verkefnum hans í Borgarleikhúsinu má nefna Deleríum búbónis, Kött á heitu blikkþaki, Sýslumann Dauðans og Þetta er Laddi. Hákon hlaut Grímuverðlaunin fyrir besta leik í aukahlutverki fyrir Sýslumann Dauðans.

Birna Pétursdóttir útskrifaðist frá Rose Bruford College í London árið 2012. Frá útskrift hefur hún meðal annars leikið hjá Leikfélagi Akureyrar og í Þjóðleikhúsinu. Þá hefur hún látið til sín taka sem handritshöfundur m.a. í sviðsverkunum Fullorðin og Galdragáttinni hjá LA. Af nýlegum verkefnum hennar í Borgarleikhúsinu má nefna Fíasól gefst aldrei upp, Sýslumaður Dauðans, Ungfrú Ísland og Þetta er Laddi. Hún hlaut Grímuverðlaunin fyrir besta leik í aukahlutverki fyrir Benedikt búálf og svo aftur sem besta leikkona í aðalhlutverki fyrir Ungfrú Ísland.

Mikael Kaaber útskrifaðist af leikarabraut Listaháskóla Íslands árið 2024 og hefur komið víða við, bæði á sviði, í sjónvarpi og í kvikmyndum. Mikael hefur starfað við Borgarleikhúsið frá haustinu 2025 og hefur slegið í gegn í hlutverki Christians í söngleiknum Moulin Rouge! Meðal annarra verkefna á sviði má nefna Vitfús Blú, Nauðbeygð messa nýrra tíma og Ástarseyði Bergamólíó kroppinbaks með Afturámóti. Af verkefnum í kvikmyndum og sjónvarpi má nefna Mannasiði, Vitjanir, Kulda, 112, Brján, Hvar er draumurinn og Ljósbrot sem var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 2024, en fyrir hlutverk sitt þar var Mikael tilnefndur til Edduverðlaunanna.

Viktoría Dalitso Þráinsdóttir er nemandi í Leiklistarskóla Borgarleikhússins auk þess að stunda bæði píanó-og dansnám. Hún hefur leikið í sjónvarpsþáttum, meðal annars Stundinni okkar og á barnaverðlaunahátíðinni Sögum, en hefur einnig tekið að sér talsetningu í teiknimyndum, leikið í sjónvarpsauglýsingum og unnið að fjölbreyttum verkefnum. Viktoría fór með aðalhlutverk Fíusólar í Fíasól gefst aldrei upp og kom fram í sýningunni Þegar ég sé þig sé ég mig, sem báðar voru sýndar í Borgarleikhúsinu.

Katla Margrét Þorgeirsdóttir útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1997 og hefur gegnum árin farið með fjölmörg hlutverk hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Af nýlegum sýningum hennar í Borgarleikhúsinu má nefna Emil í Kattholti, Fyrrverandi, Elly, Með Guð í vasanum og Þetta er Laddi. Katla á að baki farsælan feril í kvikmyndum og sjónvarpi og má þar nefna aðalhlutverk í kvikmyndinni Agnes Joy og aðkomu hennar að þáttaröðinni Stelpunum þar sem hún bæði lék og var einn handritshöfunda. Katla er einnig meðlimur í hinni rómuðu hljómsveit Heimilistónum.

Vilhelm Neto útskrifaðist frá CISPA (Copenhagen International School of Performing Arts) árið 2019. Hann hefur leikið á sviði með sjálfstæðum leikhópum og sett upp uppistandssýningar með VHS hópnum. Þá hefur hann leikið í sjónvarpi – m.a. í Áramótaskaupum, Netflix seríunni The Witcher: Blood Origin og HBO seríunni True Detective. Af nýlegum verkefnum hans í Borgarleikhúsinu má nefna Deleríum búbónis, Fíasól gefst aldrei upp, Óskaland, Ungfrú Ísland, Þetta er Laddi og Hamlet.
Eva Signý Berger er leikmynda- og búningahönnuður og yfirhönnuður Borgarleikhússins. Hún lauk BA-prófi í sviðshönnun frá Central Saint Martins í London árið 2007 og hefur síðan hannað leikmyndir og/eða búninga fyrir á sjötta tug sýninga í leikhúsi, dansi, óperu og brúðuleikhúsi, auk verkefna á sviði kvikmynda og myndlistar. Eva hefur starfað með helstu sviðslistastofnunum landsins og árið 2019 var hún fulltrúi Íslands á Prague Quadrennial of Performance Design. Meðal nýlegra verkefna hennar í Borgarleikhúsinu eru leikmyndir fyrir Eitraða litla pillu, Fíasól gefst aldrei upp, Þetta er Laddi og Galdrakarlinn í Oz. Eva hefur hlotið fjölmargar tilnefningar til Grímunnar, íslensku sviðslistaverðlaunanna, meðal annars fyrir búninga í Bæng, Atómstjörnu, Tímaþjófnum og Auglýsingu ársins og fyrir leikmyndir í Crescendo, Évgení Onegin, Konunni við 1000° og nú síðast Galdrakarlinum í Oz.
Pálmi Jónsson er fastráðinn ljósahönnuður hjá Borgarleikhúsinu sem starfað hefur víða síðustu ár bæði sem sjálfstætt starfandi hönnuður og fyrir hinar ýmsu lista-og menningarstofnanir. Þá hefur hann hannað sviðsgrafík fyrir viðburði á borð við Söngvakeppni sjónvarpssins og Eurovision. Af nýlegum verkefnum hans í Borgarleikhúsinu má nefna Fíasól gefst aldrei upp, Ungfrú Ísland, Þetta er Laddi, Moulin Rouge! Söngleikur og Hamlet. Pálmi hlaut Grímuna fyrir lýsingu ársins 2025 fyrir sýningu Íslenska dansflokksins Hringir Ofeusar og annað slúður.
Þorbjörn Steingrímsson lauk hljóðtækninámi á vegum Tækniskólans og Stúdíó Sýrlands árið 2016. Hann hóf störf sem hljóðmaður í Borgarleikhúsinu 2017 og var fastráðinn við hljóðdeild leikhússins árið 2019. Meðal nýlegra sýninga á sem Þorbjörn hefur unnið að eru Fíasól gefst aldrei upp, Óskaland, Fjallabak, Niflungahringurinn og Galdrakarlinn í Oz. Hann var tilnefndur til Grímunnar fyrir hljóðmynd í sýningunni Macbeth ásamt Hrafnkatli Flóka Kaktus.
Guðbjörg Ívarsdóttir lauk sveinsprófi frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 1983. Guðbjörg var fastráðin við leikgervadeild Borgarleikhússins árið 2013 og hefur síðan þá komið að flestum sýningum hússins. Af nýlegum verkefnum hennar í Borgarleikhúsinu má nefna Svartþröst, Deleríum búbónis, Teprurnar og Óskaland.
Myndir úr sýningunni
Þú ert yndið mitt yngsta og besta
Lag: Þórarinn Guðmundsson
Texti: Guðmundur Björnsson
Careless Whisper
Lag og texti: George Michael
New York, New York
Lag: John Kander
Texti: Fred Ebb
Vermeland
Sænskt þjóðlag
Wake Me Up Before You Go-Go
Lag og texti: George Michael
Tóm Tjara
Lag og texti: Jóhann G. Jóhannsson
Rósin
Lag: Friðrik Jónsson
Texti: Guðmundur Halldórsson
Come On Eileen
Lag og texti: Kevin Rowland, Jim Paterson og Billy Adams
Endurfundir
Lag og texti: Sigfús Eiríkur Arnþórsson
Einhversstaðar einhverntímann aftur
Lag og texti: Magnús Eiríksson
Una furtiva Lagrima úr Ástardrykknum í flutningi Jussi Björling
Lag: Gaetano Donizetti
Texti: Felice Romani
Sommarnatt–Serenad í flutningi Jussi Björling
Lag: Mogens Schrader
Texti: Dagmar Schrader (sænsk þýðing: Gösta Stevens)
Ave Verum Corpus, k.618
Lag: Wolfgang Amadeus Mozart
Útsetning: Franz Liszt
Rapper's Delight
Lag og texti: Nile Rodgers og Bernard Edwards
Do You Really Want to Hurt Me
Lag og texti: Boy George (George O'Dowd), Roy Hay, Mikey Craig og Jon Moss
Pamela
Lag: Kári Erlingsson
Texti: Gígja Sigurðardóttir
Vals no.1
Lag: Magnús Eiríksson
Vem kan segla
Finnskt/sænskt þjóðlag
Dallas Opening Theme
Lag: Jerrold Immel
Ég lít í anda liðna tíð
Lag: Sigvaldi Kaldalóns
Texti: Halla Eyjólfsdóttir
Búningagerð
Geirþrúður Einarsdóttir, Ingunn Lára Brynjólfsdóttir, Leila Arge, Maggý Dögg Emilsdóttir og Stefanía Adolfsdóttir
Leikgervi
Tinna Ingimarsdóttir, Kristín Elisabeth Kristínardóttir, Hulda Finnsdóttir, Sara Friðgeirsdóttir, Birgitta Rós Jónsdóttir og Elsa Þuríður Þórisdóttir
Leikmunagerð
Fanney Sizemore, Frosti Friðriksson, Högni Sigþórsson og Mathilde Morant
Leikmyndagerð
Ásdís Hanna Gunnhildar Guðnadóttir – smiður og málari, Björgvin Már Pálsson – smiður og málari, Finnur G Olguson - smiður, Gabriel Backman Waltersson – smiður og málari, Kristlín Dís Ingilínardóttir - smiður, Unnur Sif Geirdal – smiður og málari, Victoria Björk Ferrell - saumari, Viðar Jónsson – smiður
Sviðsmenn
Alvin Máni Möller, Högni Þór Þorsteinsson, Eva Sigurðardóttir og Heba Sól Baldursdóttir
Hljóðkeyrsla
Guðmundur Elí Jóhannsson og Snorri Beck Magnússon
Ljósakeyrsla
Kristinn Snær Sigurðsson og Óskar Gíslason
Leikmunavarsla
Sólrún María Jóhannsdóttir og Fanney Sizemore
Listabraut 3
103 Reykjavík
Kt. 420269-6849
Miðasala: 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Skrifstofa: 568 5500
Fyrirspurnir: borgarleikhus@borgarleikhus.is
Takk fyrir stuðninginn
Borgarleikhúsið er rekið með sérstökum rekstrarsamningi við Reykjavíkurborg sem gerir okkur kleift að halda áfram að bjóða landsmönnum upp á kraftmikið og skapandi leikhús.