Frægasta leikverk sögunnar – í nýjum búningi fyrir nýjar kynslóðir!
„Að vera eða ekki vera”
Fortíð og framtíð takast á í glænýrri útfærslu Kolfinnu Nikulásdóttur á frægasta leikriti heims. Hamlet, leikrit leikritanna, er í senn saga um sannleika, stöðu, stétt og ekki síst leiklistina sjálfa.
Í þessu glænýja handriti blæs Kolfinna Nikulásdóttir lífi í forna ljóðabálka frá sautjándu öld og fær einvalalið leikara til að pumpa blóði í hjarta þessa aldagamla verks. Um er að ræða sýningu sem teygir formið eins langt og mögulegt er - á sama tíma og það stingur í samband við áhorfendur.
Hamlet, í uppsetningu Kolfinnu, rannsakar þenslumörk leikhússins og spyr: Hvernig samsvarar heimsmynd Shakespeare okkar eigin í dag? Mannkynið, líkt og persónur verksins, lifir á umbrotatímum. Síbreytilegar líftæknilegar lausnir, óstöðugleiki í efnahagsmálum, pólitískur glundroði, fake news, og blörruð framtíðarsýn - Að vera eða ekki vera?
Boðberi framtíðarinnar, Kolfinna Nikulásdóttir, og andi fortíðarinnar, William Shakespeare, í eina sæng og úr verður leikhúsupplifun sem sperrir eyru, sprengir augu og makes theatre great again - kvöldstund sem enginn vill missa af.
Upplýsingar um viðkvæmt innihald og áreiti er að finna hér