Kjarval
- Litla sviðið
- Skólasýning
- Verð: Eingöngu sýning fyrir grunnskóla - ekki í almennri sölu
Kjarval
Flýtið ykkur út og horfið á fegurðina!
Barnasýningin um Kjarval: drenginn, manninn og málarann.
Listmálarinn Jóhannes Sveinsson Kjarval var ekki bara
einn merkasti málari sem Íslendingar hafa átt, heldur
má segja að hann hafi átt stóran þátt í að kenna þjóð
sinni að meta stórbrotna náttúru landsins, náttúrunnar
vegna. En hver var þessi sérkennilegi maður – og hvaðan
kom hann? Í leikandi léttri fjölskyldusýningu sem byggir
að hluta til á verðlaunabók Margrétar Tryggvadóttur
um listamanninn, er leitast við að draga upp mynd af
Kjarval; drengnum, manninum og málaranum.
Listin
sjálf er sömuleiðis í brennidepli; hvernig hún er allt í
kringum okkur og hefur áhrif á lífið alla daga, við horfum
á listina og ef við erum heppin þá horfir hún til baka.
Jóhannes Kjarval batt bagga sína ekki sömu hnútum og
samferðamenn en kenndi okkur að líta umhverfið nýjum
augum og sjá listina í hinu stórbrotna jafnt sem hinu
hversdagslega – í hrikalegu hrauni en líka í mygluðum
flatkökum.
Kjarval er einungis sýnd fyrir skólaheimsóknir.
Tónlistin úr verkinu - Úlfur Eldjárn
Um verkið
Leikarar
- Sigurður Ingvarsson
- Íris Tanja Flygenring
Listrænir stjórnendur
Höfundur leikgerðar og leikstjóri
Stefán Hallur StefánssonTónlist
Úlfur EldjárnLeikmynd og búningar
Guðný Hrund SigurðardóttirLýsing
Pálmi JónssonHljóð
Þorbjörn SteingrímssonLeikgervi
Elín S. GísladóttirSviðshreyfingar
Kata IngvaAðstoðarmaður leikstjóra
Rakel Björk BjörnsdóttirÆfingastjóri og staðgengill leikstjóra leikárið 2023-2024
Jörundur Ragnarsson