Borgarleikhúsið

Leikritið Allt sem er frábært frumsýnt í kvöld

14 sep. 2018

Fyrsta frumsýning leikársins í Borgarleikhúsinu verður í kvöld, föstudagskvöld, þegar að einleikurinn Allt sem er frábært verður frumsýndur á Litla sviði leikhússins. Um er að ræða gleðileik um depurð með Vali Frey Einarssyni sem er eini leikari sýningarinnar. 

Hann segir sögu ungs manns sem reynir að bregðast við þunglyndi og depurð móður sinnar með því að gera lista yfir allt það sem er frábært í heiminum og þess virði að lifa fyrir. Á listanum er hlutir eins og rjómaís, guli liturinn, kung fu-myndir, vatnsslagur, mega horfa fram eftir á sjónvarpið, fólk að detta og rússíbani, svo eitthvað sé nefnt. Tuttugu árum síðar er listi unga drengsins í fullu gildi og hefur lengst svo um munar - í ævilanga áminningu um það að gleði er ekki síst að finna í hlutum sem virðast léttvægir. 

Höfundur er Duncan Macmillan, sá hinn sami og skrifaði verkin Andaðu og Fólk, staðir og hlutir sem sló í gegn í Borgarleikhúsinu á síðasta leikári. Verkið hefur verið sett á svið víða um heim og hlotið gríðarlega góðar viðtökur gagnrýnenda jafnt sem áhorfenda.

Leikstjóri sýningarinnar er Ólafur Egill Egilsson, þýðandi er Kristín Eiríksdóttir, Brynju Björnsdóttir sér um leikmynd og búninga, Þórður Orri Pétursson um lýsingu, Baldvin Þór Magnússon um hljóð og aðstoðarleikstjóri er Hlynur Páll Pálsson.