Borgarleikhúsið

Þorleifur Örn aftur í Borgarleikhúsið!

25 jún. 2024

Leikstjórinn Þorleifur Örn Arnarsson kemur beint frá Bayreuth í Borgarleikhúsið og sökkvir sér í eitt lykilverka 20. aldarinnar, Kött á heitu blikkþaki eftir Tennessee Williams. 

Myndlistakonan og pistlahöfundurinn Erna Mist sér um leikmynd og búninga en Jón St. Kristjánsson hefur gert nýja þýðingu. Sigurður Ingvarsson og Ásthildur Úa Sigurðardóttir fara með hlutverk Brick og Maggie en í öðrum hlutverkum eru Hilmir Snær Guðnason, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Hákon Jóhannesson, Heiðdís Hlynsdóttir, Halldór Gylfason og Jörundur Ragnarsson. Þorleifur Örn hefur skapað ógleymanlega heima í stórsýningum á borð við Njálu og Guð blessi Ísland. Nú þysjar hann inn og rannsakar þessa mögnuðu fjölskyldusögu Tennessee Williams, ásamt þungavigtar leikhópi, á Litla sviðinu. Frumsýning er 29. desember n.k.

Þorleifur segir„Mér finnst ótrúlega gaman að snúa aftur í Borgarleikhúsið og takast á við einn af mögnuðustu textum 20 aldarinnar. Með þessum texta, þessu listræna teymi og ekki síst þessum stórkostlegu leikurum verður boðið til magnaðrar veislu í árslok."