Borgarleikhúsið

Ball

  • Stóra sviðið
  • Verð: 5900
  • Sýningum lokið

Ball

Eftir Alexander Roberts og Ásrúnu Magnúsdóttur

Á Balli koma saman atvinnudansarar og áhugadansarar – breikdansari frá níunda áratugnum, ballerína á eftirlaunum, samkvæmisdans stjarna, freestyle goðsögn, bollýwood dansari, streetdansari, dansarar Íslenska dansflokksins, gó-gó dansari, dansnemandi og nútímadansari sem elskar að dansa við Bob Marley. Það sem þau eiga öll sameiginlegt er ást þeirra á dansi.

Ball býður dans elskendum á öllum aldri, með ólíka líkama, mismunandi bakgrunn og reynslu að stíga upp á svið og dansa saman.

Hvert og eitt þeirra býður upp á dans, velur sína tónlist og finnur leið til þess að deila sínum dansi með hópnum. Dansinn á ekki bara að snúast um afburðartækni eða ómælda hæfileika hvers og eins heldur einnig um upplifunina á því að dansa alla þessa dansa saman.

Rétt eins og gerist á balli.

Listrænir stjórnendur

  • Höfundar

    Alexander Roberts & Ásrún Magnúsdóttir
  • Búningar

    Erna Guðrún Fritzdóttir
  • Ljós

    Kjartan Þórisson
  • Hljóð

    Baldvin Þór Magnússon
  • Æfingastjóri

    Kata Ingva
  • Ljósmynd

    Lilja Birgisdóttir