Black Marrow
- Stóra sviðið
- Íslenski dansflokkurinn
- 60 mín
- Verð: 5.900 kr.
- Sýningum lokið
Black Marrow
Smyrsl guðs eða saur djöfulsins?
Hvað er þetta svarta blóð sem rennur um æðar okkar iðnvædda heims? Hvaða goðsagnir er þar að finna? Hve mikið mun það óafturkallanlega umbreyta okkur og sambandi okkar við umhverfið? Hversu háð erum við og hvað göngum við langt til að uppfylla þarfir okkar? Erum við olía framtíðarinnar?
Með þessar spurningar að leiðarljósi sköpuðu Erna Ómarsdóttir og Damien Jalet fyrstu útgáfuna af Black Marrow í Ástralíu árið 2009 sem þau hafa nú þróað enn frekar með dönsurum Íslenska dansflokksins. Erna og Damien finna hér upp á nútíma helgiathöfn út frá hinu forna sambandi mannsins við náttúruna. Með dönsurunum nýta þau hinn forna trans til að endurspegla heim þar sem eðlishvötin hefur verið iðnvædd og líkaminn umbreytist, stökkbreytist, gleðst og berst til að lifa af. Með því að nota rytma, endurtekningu og örmögnun í bland við seiðmagnaða tónlist Ben Frost, umbreytast dansararnir í steingervinga, vélar, heiðin goð og áhyggjulausan, glitrandi æskulýð. Hver einasta athöfn hefur tilgang – trans er oft læknandi.
Black Marrow er eins og afmyndaður spegill, skyggð endurspeglun á nútímasambandi okkar við jörðina. Ljóðræn tilraun til að bjarga henni… eða okkur sjálfum.Black Marrow var upprunalega samið fyrir Chunky Move dansflokkinn og samið í samvinnu við Sara Black, Paulo Castro, Julian Crotti, Alisdair Macindoe, Carlee Mellow & James Shannon. Black Marrow var fyrst frumsýnt á Alþjóðlegu listahátíðinni í Melbourne í október 2009.
Listrænir stjórnendur
Danshöfundar
Erna Ómarsdóttir
Damien JaletAstoðarmaður danshöfunda
Sara BlackFrumsamin tónlist
Ben FrostÖnnur tónlist
DanzelLjós
Björn Bergsteinn GuðmundssonBúningar
Júlíanna SteingrímsdóttirSviðsmynd
Alexandra Mein
Erna Ómarsdóttir
Damien Jalet
Júlíanna Steingrímsdóttir
Rebekka MoranGrímur
Rebekka Moran & Heimir Sverrisson eftir upprunalegri hönnun Alexandra Mein