Borgarleikhúsið

Elly

  • Stóra sviðið
  • 2:45 klst (með hléi), Eitt hlé
  • Verð: 12.900
  • Sýningar hefjast 6. september 2024

Elly

Elly er komin aftur! Í takmarkaðan tíma stígur Katrín Halldóra aftur á Stóra sviðið sem Elly Vilhjálms í rómaðri sýningu Gísla Arnar Garðarssonar eftir handriti Gísla og Ólafs Egils Egilssonar. Sýningin sló á sínum tíma öll met og naut fádæma vinsælda. Nú snýr Elly aftur vegna fjölda áskorana! 

Hún bjó yfir óræðri dulúð og töfraði áhorfendur með söng sínum og leiftrandi persónuleika; túlkunin hógvær og ígrunduð, röddin silkimjúk og hlý. Líf Ellyjar varð stundum efni í sögusagnir og slúður sem hún hirti lítið um að svara því hún var dul og forðaðist sviðsljós fjölmiðlanna. Í þessari mögnuðu sýningu fetar Katrín Halldóra í fótspor einnar dáðustu söngkonu þjóðarinnar og syngur sig inn í hjörtu áhorfenda sem aldrei fyrr.

Gagnrýni

Rýnir á hreinlega ekki nógu sterkt orð til að lýsa magnaðri túlkun Katrínar á Elly

S.B.H., Morgunblaðið

Búningahönnun Stefaníu Adolfsdóttur er bæði metnaðarfull og einstaklega vel heppnuð

S.J., Fréttablaðið

... hreinlega afrek hvað þeim tekst að gera sér mikinn mat úr efniviðnum og skapa lifandi persónur

S.B.H., Morgunblaðið

Leikarar

  • Katrín Halldóra SigurðardóttirElly Vilhjálmsdóttir
  • Björgvin Franz Gíslason
  • Sigurður Ingvarsson
  • Hjörtur Jóhann Jónsson
  • Katla Margrét Þorgeirsdóttir

Listrænir stjórnendur

  • Höfundar

    Gísli Örn Garðarsson og
    Ólafur Egilsson
  • Leikstjórn

    Gísli Örn Garðarsson
  • Leikmynd

    Börkur Jónsson
  • Búningar

    Stefanía Adolfsdóttir
  • Lýsing / Umsjón með enduruppsetningu

    Þórður Orri Pétursson /
    Pálmi Jónsson
  • Hljóð / Umsjón með enduruppsetningu

    Garðar Borgþórsson /
    Þorbjörn Steingrímsson
  • Leikgervi / Umsjón með enduruppsetningu

    Árdís Bjarnþórsdóttir /
    Elín Sigríður Gísladóttir
  • Tónlistarstjórn

    Guðmundur Óskar Guðmundsson
  • Höfundur sviðshreyfinga

    Selma Björnsdóttir
  • Hljómsveit

    Aron Steinn Ásbjarnarson,
    Guðmundur Óskar Guðmundsson,
    Hjörtur Ingvi Jóhannsson,
    Örn Eldjárn, o.fl.