Borgarleikhúsið

Fúsi: Aldur og fyrri störf

  • Litla sviðið
  • Verð: 4900
  • Frumsýning 17. nóvember
  • Væntanleg
  • Miðasala er ekki hafin á sýninguna Fúsi: Aldur og fyrri störf. Nánari upplýsingar verða birtar síðar.
  • Kaupa kort

Fúsi: Aldur og fyrri störf

Fúsi, aldur og fyrri störf, er heimildaleiksýning um Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson. Í sýningunni fer Fúsi yfir ævi sína og valin atriði úr fjölbreyttu lífi hans eru færð í leik- og söngbúning með aðstoð leikara og söngvara.

Fúsi er húmoristi, fótboltaáhugamaður, leikari, söngvari og lífskúnstner sem minnir okkur á að lífið er alltaf þess virði að lifa því þó að stundum sverfi að. Hindranirnar í lífi Fúsa hafa eflt hann og hvatt hann til að lifa lífinu til hins ítrasta með fötlun sinni og njóta hvers einasta dags. Stundum er lífsreynsla þó þess eðlis að aldrei verður fyllilega hægt að komast yfir hana, sama hversu jákvæður og sterkur einstaklingur er.

Sýningin byggir á viðtölum við Fúsa, sem Agnar Jón frændi hans og leikstjóri sýningarinnar tók við hann á meðan covid faraldrinum stóð. Tilurð sýningarinnar er því samband frændanna Fúsa og Agga og samverustundir þeirra.

Í samstarfi við sviðslistaframleiðandann Monochorme og List án landamæra. 

Leikarar

  • Agnar Jón Egilsson
  • HalldóraHalldóra Geirharðsdóttir
  • Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson
  • Vala Kristín EiríksdóttirVala Kristín Eiríksdóttir

Listrænir stjórnendur

  • Höfundar

    Agnar Jón Egilsson og Sigfús Sveinbjörn Svanbergsson

  • Leikstjórn

    Agnar Jón Egilsson
  • Leikmynd og búningar

    Svanhvít Thea Árnadóttir
  • Aðstoðarleikstjóri

    Ástbjörg Rut Jónsdóttir