Borgarleikhúsið

Jól á náttfötunum

  • Litla sviðið
  • 1 klst
  • Verð: 4900
  • Væntanleg
  • Miðasala er ekki hafin á sýninguna Jól á náttfötunum. Nánari upplýsingar verða birtar síðar.
  • Kaupa miða Panta mat

Jól á náttfötunum

Gunni og Felix í jólaskapi

Þá Gunna og Felix þarf sennilega ekki að kynna fyrir neinum enda hafa þeir glatt börn á öllum aldri í áratugi og verið brennandi í áhuga sínum og ástríðu fyrir barnamenningu. Nú bjóða þeir félagarnir - ásamt Karli Olgeirssyni - börnum og fylgdarfólki á dásamlega jólastund í Borgarleikhúsinu, alla sunnudaga á aðventunni.

Gegnum tíðina hefur Felix gefið Gunnari sérlega góðar jólagjafir og þessi jól ætlar Gunni að launa vini sínum hugulsemina og gefa Felix bestu jólagjöf í heimi. Nú er gjöfin góða á leiðinni og bæði Gunni og Felix eru að farast úr spenningi rétt eins og öll börn sem bíða jólanna með fiðrildi í maganum.

Jól á náttfötunum hefur nú þriðja sýningarárið og þeir Gunni og Felix lofa gleði, söng, gríni, spennu og síðast en ekki síst jólahuggulegheitum á aðventunni!

Leikarar

  • Felix Bergsson
  • Gunnar Helgason
  • Karl Olgeirsson

Listrænir stjórnendur

  • Höfundar

    Felix Bergsson og Gunnar Helgason
  • Leikstjórn, leikmynd og búningar

    Björk Jakobsdóttir

  • Danshöfundar

    Gunni og Felix 

  • Tónlist

    Jón Ólafsson og Máni Svavarsson

  • Lýsing

    Freyr Vilhjálmsson

  • Hljóðmynd

    Karl Olgeirsson, Máni Svavarsson 

  • Píanóleikur

    Karl Olgeirsson 

  • Myndvinnsla

    Ingi Bekk