Borgarleikhúsið

Starfsfólk

Gunnar Hildimar Halldórsson

Gunnar Hildimar Halldórsson hefur starfað sem ljósatæknimaður og hönnuður frá árinu 2011. Hann vann í Hörpu Tónlistarhúsi og sinnti þar lýsingarhönnun á fjölbreyttum viðburðum frá óperuuppfærslum til Iceland Airwaves tónlistarhátíðarinnar. Hann hefur einnig starfað sjálfstætt m.a. á Aldrei fór ég suður hátíðinni, fyrir Íslenska dansflokkinn, Fjallabræður ofl. Hann hóf störf hjá Borgarleikhúsinu árið 2022 og meðal sýninga sem hann hefur hannað lýsingu fyrir eru Deleríum búbónis og Fúsi – aldur og fyrri störf