Jörundur Ragnarsson
Jörundur Ragnarsson útskrifaðist með BFA gráðu frá leiklistardeild Listaháskóla Íslands árið 2006. Eftir útskrift lék hann í fjölda leiksýninga bæði í Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu ásamt nokkrum verkum með sjálfstæðum leikhópum. Árið 2012 hvarf Jörundur frá leikhúsi til að stunda nám við Columbia háskóla í New York, þaðan sem hann útskrifaðist 2016 með M.F.A. gráðu í kvikmyndaleikstjórn og handritaskrifum. Jörundur hefur þar fyrir utan leikið á annan tug hlutverka í sjónvarpi og kvikmyndum. Síðustu verk hans í Borgarleikhúsinu eru Sex í sveit, Þétting hryggðar og Fyrrverandi.