Borgarleikhúsið

Sigurður Þór Óskarsson

Sigurður Þór Óskarsson útskrifaðist frá leikaradeild LHÍ árið 2012. Frá útskrift hefur hann leikið bæði hjá Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu og af nýlegum verkefnum hans þar má nefna Emil í Kattholti, Macbeth og Deleríum búbónis. Sigurður hefur einnig leikið töluvert í sjónvarpi og kvikmyndum og talsett fjöldamargar vinsælustu teiknimyndir síðustu ára. Hann hefur þrisvar sinnum verið tilnefndur til Grímuverðlaunanna.