Borgarleikhúsið

Fíasól gefst aldrei upp! Forsala 14. og 15. september!

14 sep. 2023

Sýning fyrir krakka á öllum aldri! Forsölutilboð - aðeins 4.990.- Tryggðu þér miða

Hún er óstöðvandi gleðisprengja, full af orku en stundum löt, skarpgreind en fljótfær og svo hugmyndarík að foreldrum hennar stendur hreinlega ekki alltaf á sama. Stelpuskottið Fíasól er fyrir löngu orðin sígild í íslenskri bókmenntasögu og á sér aðdáendur á öllum aldri.

Í vetur stígur hún loks á Stóra sviðið í Borgarleikhúsinu í nýrri leikgerð sem byggir á rómuðum skáldverkum Kristínar Helgu Gunnarsdóttur. Hér fá áhorfendur að hitta systur Fíusólar og foreldra, ömmu og afa, besta vininn Ingólf Gauk, kennarann, alla krakkana í bekknum og síðast en ekki síst lata kjölturakkann Hansínu. Það gengur á ýmsu bæði í skólanum og á heimilinu þegar Fíasól ákveður að hafa tækjalausan dag og ekki síður þegar hrekkjavakan nálgast en þegar mamma heldur að þau pabbi geti bara lagt sumarhýru Fíasólar inn á bankabók verður nú fyrst allt vitlaust og Fíasól stofnar hjálparsveit barna. Eins og Fíasól segir sjálf þá er ekki alltaf gott að vita hvort hugmyndir séu góðar eða slæmar þegar þær koma upp í kollinn!

Leikstjórinn Þórunn Arna Kristjánsdóttir leiðir hér úrvals lið leikara og stóran og kraftmikinn barnahóp í nýjum fjölskyldusöngleik með frumsaminni tónlist hins góðkunna Braga Valdimars Skúlasonar.

Kaupa miða