Borgarleikhúsið

Persónuverndar­skilmálar Borgarleikhússins

Borgarleikhúsið framkvæmir söfnun, nýtingu og vinnslu persónuupplýsinga, og leggur áherslu á vernd persónuupplýsinga viðskiptavina sinna og friðhelgi einkalífs.

Borgarleikhúsið leggur áherslu á að öll söfnun, nýting og vinnsla persónuupplýsinga sé í samræmi við lög og í lögmætum tilgangi.

Borgarleikhúsið mun gera ráðstafanir og beita aðferðum til þess að varðveita og vernda upplýsingarnar þínar.

Borgarleikhúsið veitir upplýsingar um þau gögn sem við söfnum og hvað við gerum við þau, sé þess óskað.

Borgarleikhúsið mun nota upplýsingarnar sem þú gefur okkur í þeim tilgangi sem lýst er í stefnu okkar um persónuvernd. Það felur meðal annars í sér að veita þér þá þjónustu sem þú hefur óskað eftir og betrumbæta upplifun þína hjá Borgarleikhúsinu.

Borgarleikhúsið mun einnig nýta upplýsingarnar til að bjóða þér viðeigandi tilboð. Borgarleikhúsið mun ekki senda þér markaðsefni ef þú lætur okkur vita að þú viljir ekki taka við slíku. Hins vegar munum við halda áfram að senda þér mikilvægar uppfærslur og upplýsingar um þjónustu eða vöru sem þú hefur keypt til þess að upplýsa þig um breytingar og minna á sýningartíma.

Vinsamlegast hafðu samband við okkur í tölvupósti á netfangið borgarleikhus@borgarleikhus.is ef þú hefur frekari fyrirspurnir um persónuvernd.

Um markaðsefni:

Þegar þú veitir okkur upplýsingar beint getur þú verið spurð(ur) hvort þú viljir fá markaðsefni frá okkur. Við virðum óskir þínar um hvort þú viljir fá markaðsefni frá okkur og með hvaða hætti þú vilt fá það afhent.

Þú getur skipt um skoðun hvenær sem er um hvort þú vilt fá sent markaðsefni eða ekki.

Þú getur haft samband á netfangið borgarleikhus@borgarleikhus.is til að hætta að fá markaðsefni frá okkur. Þá er gefinn kostur á að skrá sig úr áskrift að frekara markaðsefni í öllum markaðssamskiptum sem send eru í tölvupósti.

Ef þú gefur til kynna að þú viljir ekki fá markaðsefni frá okkur munum við þó halda eftir persónuupplýsingum þínum til að geta uppfyllt ósk þína um að fá ekki slíkt efni.

Um geymslu persónuupplýsinga:

Persónuupplýsingar þínar verða geymdar eins lengi og nauðsynlegt er í þeim tilgangi sem þær eru ætlaðar til vinnslu. Gætt verður að eyðingu persónuupplýsinga í samræmi við lög.

Um ábyrgðaraðila:

Þegar Borgarleikhúsið vinnur persónuupplýsingar þínar telst það vera ábyrgðaraðili persónuupplýsinga þinna. Aðrir þjónustuaðilar, t.d. bókunarsíður fyrir leikhúsmiða sem veita hluta af þjónustunni eru aðskildir ábyrgðaraðilar. Persónuverndarstefna þeirra er aðgengileg beint frá þeim.

Gildissvið:

Persónuverndarstefna Borgarleikhússins á við þegar við söfnum, nýtum eða vinnum með öðrum hætti persónuupplýsingar sem varða samband þitt við okkur sem viðskiptavinur eða tilvonandi viðskiptavinur. Með talið er þegar þú bókar leikhúsmiða í eigin persónu, símleiðis eða á heimasíðu okkar eða nýtir eða nýtir aðra þjónustu okkar, svo sem heimasíðu okkar eða símaþjónustu með öðrum hætti.

Um persónuupplýsingar:

Allar upplýsingar sem auðkenna þig, svo sem nafnið þitt, tengiliðaupplýsingar þínar, kaupsaga þín eða upplýsingar um hvernig þú notar heimasíðu okkar, teljast til persónuupplýsinga.

Um tegundir persónuupplýsinga sem við vinnum:

Til að veita þér þjónustu okkar eða annarra samstarfsaðila svo sem miðabókunarþjónustu, verðum við að vinna úr persónuupplýsingum þínum. 

Borgarleikhúsið vinnur eftirfarandi tegundir persónuupplýsinga:

  • Upplýsingar sem þú veitir sem eru notaðar til að bóka eða veita þjónustu sem þú óskar eftir.
  • Upplýsingar um þjónustu sem þú hefur áður notað, svo sem keypta miða og áskriftarkort.
  • Upplýsingar um samskipti þín við starfsfólk Borgarleikhússins á meðan veitingu þjónustu stendur, svo sem kvartanir.
  • Rafrænt mynd- og hljóðefni, í öryggis- og eignavörsluskyni.

Um tilgang vinnslu:

Megintilgangur með vinnslu persónuupplýsinga þinna er að veita þér þá þjónustu sem þú hefur óskað eftir, að senda þér uppfærðar upplýsingar um þjónustuna ef breytingar verða, að framkvæma greiningar og markaðsrannsóknir, að kynna vörur, að bæta heimasíðu okkar og þjónustu, í tengslum við ágreining, í rekstrarlegum tilgangi svo sem vegna bókhaldsvinnu og í stjórnunarlegum tilgangi svo sem vegna beiðna um eyðingu persónuupplýsinga.

Um rafræna vöktun:

Borgarleikhúsið stundar rafræna vöktun í ákveðnum rýmum leikhússins í öryggis- og eignavörsluskyni. Mynd- og hljóðefni sem safnast við vöktunina er eytt sjálfkrafa að ákveðnum tíma liðnum nema í þeim tilfellum þegar málefnalegar ástæður og lagareglur leiða til vinnslu þess. 

Borgarleikhúsið leggur ríka áherslu á að öryggi efnis sem verður til við rafræna vöktun sé tryggt og að gætt sé að lagareglum um söfnun, nýtingu, vinnslu og eyðingu efnisins.

Um persónuupplýsingar og þriðju aðila:

Borgarleikhúsið afhendir ekki persónuupplýsingar til þriðju aðila nema um lagalega skyldu sé að ræða.

Um fótspor (e. cookies):

Borgarleikhúsið notar fótspor til að betrumbæta notendaupplifun gesta á heimasíðu okkar.

Fótspor eru örlitlar textaskrár sem vefsvæði senda í tölvuna þína eða snjalltækið þitt þegar þú heimsækir síðu, svo hægt sé að muna helstu stillingar þínar, auðvelda greiningu og frammistöðu heimasíðunnar og mæla með viðeigandi efni fyrir þig við heimsóknir.

Fæst fótspor safna upplýsingum sem auðkenna þig heldur leitast við að sækja almennar upplýsingar eins og hvers konar notendur koma á síðuna, hvers konar tæki notendur nota við heimsóknir, hvernig síðan er notuð eða almennar upplýsingar um staðsetningu notanda.

Þú getur komið í veg fyrir noktun fótspora í stillingum vafrans sem þú notar til þess að skoða heimasíðu okkar. Í flestum vöfrum er að finna leiðbeiningar um hvernig hægt er að koma í veg fyrir notkun fótspora (e. disable cookies).

Um breytingar á persónuverndarstefnunni:

Borgarleikhúsið getur gert breytingar á þessari persónuverndarstefnu á hverjum tíma, t.d. vegna lagabreytinga um það hvernig við megum vinna persónuupplýsingar þínar. Nýjasta útgáfa persónuverndarstefnunnar mun vera aðgengileg á þessari heimasíðu á hverjum tímapunkti. 

Um réttindi þín sem viðskiptavinar:

Sem viðskiptavinur Borgarleikhússins hefur þú rétt á að óska eftir aðgengi að, leiðréttingu á, takmörkun að og eyðingu á persónulegum upplýsingum þínum sem eru geymdar hjá okkur. Enn fremur getur þú óskað eftir afriti af persónuupplýsingum þínum.

Sem viðskiptavinur getur þú einnig andmælt hluta vinnslunnar. Í þeim tilvikum þegar vinnslan byggir á samþykki þínu getur þú afturkallað samþykkið hvenær sem er. Í öðrum tilvikum kann vinnsla að vera nauðsynleg vegna lagalegra krafna þar um.

Um afrit, eyðingu og kvartanir:

Samkvæmt íslenskum persónuverndarlögum getur þú óskað eftir afriti af persónuupplýsingum þínum ef þær eru unnar af Borgarleikhúsinu. Þú þarft ekki að greiða gjald fyrir þessa beiðni nema hún eigi sér bersýnilega enga stoð eða sé óhófleg. Borgarleikhúsið mun gera allt sem á sínu valdi stendur til að bregðast við beiðni þinni innan 30 daga frá móttöku.

Beiðni þín verður að vera skrifleg og innihalda eftirfarandi upplýsingar:

  • Nafn, tölvupóstfang, símanúmer og póstfang.
  • Upplýsingar um beiðni þína.

Að auki biðjum við þig um að leggja fram:

  • Undirskrift þína og dagsetningu beiðninnar.
  • Afrit af opinberum skilríkjum svo sem vegabréfi eða ökuskírteini, svo við getum staðfest hver leggi fram beiðnina.
  • Sé sótt um fyrir hönd annars aðila þarf undirritað umboð frá viðkomandi.


Vinsamlegast sendu beiðni þína til:

Borgarleikhúsið, v. persónuverndar
Listabraut 3
103 Reykjavík
Ísland