Borgarleikhúsið

Fíasól gefst aldrei upp

Skráningu í prufur er lokið. Takk kærlega öll sem skráðu sig, við hlökkum til að taka á móti ykkur í leikhúsinu! 


 

Leitin að Fíusól og bekkjarfélögum hennar

Skráningu í prufur er lokið! Takk kærlega öll sem skráðu sig, við hlökkum til að taka á móti ykkur í leikhúsinu!

Næsta vetur mun Borgarleikhúsið frumsýna glænýjan fjölskyldusöngleik, Fíasól gefst aldrei upp, sem byggir á vinsælum bókaflokki Kristínar Helgu Gunnarsdóttur um gleðisprengjuna Fíusól. Við leitum því að hugmyndaríkum og hugrökkum krökkum á aldrinum 10–12 ára í hlutverk Fíusólar og bekkjarfélaga hennar.

Skráning í prufur var til og með 27. apríl 2023. Í prufunni þarf að syngja eitt lag og taka þátt í nokkrum skemmtilegum leiklistaræfingum. Við erum að leita að fjölbreyttum hópi barna og hvetjum því öll sem hafa áhuga til að sækja um!

Áætlað er að æfingar á Fíasól gefst aldrei upp hefjist haustið 2023.

Nánari upplýsingar má nálgast með því að senda póst á prufur@borgarleikhus.is

Skráning í prufur