Borgarleikhúsið

Bókin Á eigin vegum endurútgefin

3 okt. 2022

Leiksýningin Á eigin vegum var frumsýnd um miðjan september og hefur vakið mjög jákvæð viðbrögð sýningargesta. Leikgerð sýningarinnar er byggð á bókinni Á eigin vegum eftir Kristínu Steinsdóttur sem nýlega var endurútgefin af Forlaginu. 


Sigþrúður er ekkja, stundar blaðburð, garðyrkju og jarðarfarir af miklum móð. Hún er ein en ekki einmana – hún hefur alltaf þurft að treysta á sjálfa sig og er ljómandi góður félagsskapur ef út í það er farið. Fólkið hennar er allt horfið á braut – en hefur reyndar farið mislangt. Sigþrúður gerir sér litlar vonir enda hefur lífið kennt henni að slíkt hafi ekkert upp á sig en draumarnir hafa þó fylgt henni frá blautu barnsbeini og nú fá þeir loks byr undir báða vængi. 

Sýningin hefur fengið mjög góða dóma gagnrýnenda og m.a. lýst á eftirfarandi hátt: "Á eigin vegum sýnir okkur að hversdagsleikinn er stórkostlegur, asnalegur, skemmtilegur, fyndinn, lítilfjörlegur og allt þar á milli"