Borgarleikhúsið

Bæng frumsýnt á Nýja sviðinu

26 apr. 2019

Leikritið Bæng verður frumsýnt á Nýja sviði Borgarleikhússins í kvöld, föstudagskvöldið 26. apríl. Leikritið er spánnýtt verk eftir eitt þekktasta núlifandi leikskáld Þýskalands, Marius von Mayenburg. Hafliði Arngrímsson er þýðandi þess og Gréta Kristín Ómarsdóttir er leikstjóri.

Leikritið fjallar um undrabarnið Rolf Bæng, bjargvætt mannkyns - að eigin áliti. Björn Thors túlkar þetta einstaka undrabarn sem fæðist fullskapað; heiltennt og altalandi, og hans fyrsta verk er að heilla okkur öll upp úr skónum. Í augum foreldra sinna er Bæng óviðjafnanlegur í alla staði; saklaus og forvitinn drengur gæddur öllum hugsanlegum hæfileikum.

Leikarar í verkinu auk Björns eru Brynhildur Guðjónsdóttir, Davíð Þór Katrínarson, Halldór Gylfason, Hjörtur Jóhann Jónsson og Katrín Halldóra Sigurðardóttir.

Listrænir stjórnendur eru Börkur Jónsson sem sér um leikmynd, Eva Signý Berger sem sér um búninga, Kjartan Þórisson sér um lýsingu, Garðar Borgþórsson sér um hljóð og tónlist, Ingi Bekk sér um myndbönd og Elín S. Gísladóttir sér um leikgervi.

Bæng - stikla