Borgarleikhúsið

Frábærar viðtökur eftir frumsýningu á Ríkharði III

4 jan. 2019

Laugardaginn 29. desember var Shakespeare-leikritið Ríkharður III frumsýnt á Stóra sviðinu. Frumsýningin gekk frábærlega og fékk sýningin fimm stjörnur í gagnrýni tveggja stærstu dagblaða landsins; Morgunblaðinu og Fréttablaðinu.

Þetta er í þriðja skiptið sem leikritið er sviðsett í atvinnuleikhúsi á Íslandi. Í þetta sinn er það Hjörtur Jóhann Jónsson sem fær þann heiður að leika Ríkharð III en hlutverkið þykir eitt af stærstu karlhlutverkum leiklistarsögunnar. Árið 1986 lék Helgi Skúlason Ríkharð og árið 2003 var það Hilmir Snær Guðnason.

Brynhildur Guðjónsdóttir leikstýrir verkinu og er þetta fyrsta leiksýningin í hennar leikstjórn. Ekki nóg með það: Hún fyrsta konan sem leikstýrir verkinu í atvinnuleikhúsi á Íslandi og jafnframt fyrsti Íslendingurinn sem leikstýrir því. Hún vann einnig aðlögun ásamt Hrafnhildi Hagalín en Kristján Þórður Hrafnsson þýddi verkið.

Aðrir leikarar í sýningunni eru hin 83ja ára Kristbjörg Keld sem leikur í annað skipti í þessu leikriti, Jóhann Sigurðarson sem hefur leikið í öllum þremur uppfærslunum, Sigrún Edda Björnsdóttir, Valur Freyr Einarsson, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Halldór Gylfason, Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Hilmar Guðjónsson, Arnar Dan Kristjánsson, Davíð Þór Katrínarson og Sólbjört Sigurðardóttir sem er 24ja ára dansari og leikur í sínu fyrsta leikriti.

Daníel Bjarnason sér um tónlistina í verkinu en þetta er í fyrsta skipti sem hann gerir tónlist fyrir leiksýningu. Hann er margverðlaunaður tónlistarmaður og hlaut t.a.m. dönsku sviðslistarverðlaunin, Reumertinn, fyrir óperuna Brothers. Hann fékk einnig fern verðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna í ár.

Aðrir listrænir stjórnendur eru Ilmur Stefánsdóttir, leikmynd, Filippía I. Elísdóttir, búningar, Björn Bergsteinn Guðmundsson sér um lýsingu, Valgerður Rúnarsdóttir er danshöfundur, Elín S. Gísladóttir sér um leikgervi og Baldvin Þór Magnússon er með hljóð.

Ríkharður III