Borgarleikhúsið

Fyrsti samlestur á Gosa

22 jan. 2020

Fyrsti samlesturinn fyrir sýninguna um ævintýri spýtustráksins Gosa var haldinn í síðustu viku. Ágústa Skúladóttir, leikstjóri sýningarinnar, hefur unnið verkið upp úr upprunalega texta Carlo Collodi og verður sýningin frumsýnd sunnudaginn 23. febrúar. Þegar er uppselt á fyrstu 17. sýningarnar.

Haraldur Ari Stefánsson leikur Gosa og með honum á sviðinu verða Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Halldór Gylfason, Eiríkur Stephensen og Eyvindur Karlsson. Þeir tveir síðustu sömdu einnig tónlist fyrir sýningu við texta Karls Ágústs Úlfssonar.

Sagan segir frá trésmiðnum Jafet sem kemst yfir talandi viðardrumb og fær þá hugmynd að smíða úr honum brúðu. Til verður spýtustrákurinn Gosi; forvitinn prakkari sem á erfitt með að feta hinn rétta veg. Í stað þess að hlýða föður sínum heldur hann á vit vafasamra ævintýra, kynnist talandi kribbu sem reynir að koma fyrir hann vitinu, lætur undirförulan kött og ref snúa á sig og þarf að ganga í gegnum alls konar hremmingar áður en hann kemst til þroska með dyggri hjálp bláhærðu dísarinnar.

Auk Ágústu eru listrænir stjórnendur sýningarinnar Þórunn María Jónsdóttir, búninga- og leikmyndahöfundur, Þórður Orri Pétursson, lýsing, Guðbjörg Ívarsdóttir, leikgervi, Þorbjörn Steingrímsson, hljóð, og Elmar Þórarinsson, myndband.