Borgarleikhúsið

Kórar á Rocky Horror Singalong sýningu á laugardaginn

26 okt. 2018

Meðlimir Kórs Menntaskólans við Hamrahlíð og Hinsegin kórsins verða í salnum á Singalong-sýningu á söngleiknum Rocky Horror á Stóra sviði Borgarleikhússins laugardaginn 26. október. 

Þá gefst gestum tækifæri til að taka þátt í sýningunni og syngja með. Söngtextum verður varpað á skjái sitthvorumegin við sviðið.

Þetta er í annað skipti sem sýning sem þessi er haldin í Borgarleikhúsinu en tvær Singalong-sýningar voru á Mamma Mia í fyrra sem tókust einkar vel. ,,Þá munaði miklu um að það voru meðlimir kóra meðal gesta í salnum og þess vegna erum við mjög ánægð að meðlimir úr Hinsegin kórnum og MH-kórnum verði í salnum á laugardaginn. Þar er mikið söngfólk sem mun án efa hafa gaman að því að taka þátt,” segir Kristín Eysteinsdóttir, leikhússtjóri Borgarleikhússins. 

Kór Menntaskólans við Hamrahlíð og skólinn sjálfur hefur sterka tengingu við sýninguna og verkið. Páll Óskar Hjálmtýsson, sem leikur Frank N Furter í sýningunni, lék það hlutverk fyrst í sýningu hjá MH þegar hann var nemandi þar. ,,Mér þykir það auðvitað sérstaklega yndislegt að kór Menntaskólans við Hamrahlíð verði í salnum því það vill svo til að ég var í kórnum á árunum 1987 til 1990”, segir Páll Óskar. ,,Þar að auki var Rocky Horror sett upp í fyrsta skipti á íslensku af Leikfélagi MH árið 1991.”

Sýningin verður laugardaginn 27. október kl. 20 og aðeins verður ein Singalong-sýning. Að auki fer hver að verða síðastur til að sjá Rocky Horror í Borgarleikhúsinu þar sem sýningum lýkur í nóvember.