Borgarleikhúsið

Kvenfólk - 50. sýning í kvöld!

1 nóv. 2019

Í kvöld, föstudaginn 1. nóvember verður 50. sýning á Kvenfólki með Hundi í óskilum í Borgarleikhúsinu. 

„Súrrealískur og stórskemmtilegur söngfyrirlestur með hárbeittum skilaboðum.“ **** S.J Fréttablaðið.

Kvenfólk var frumsýnt á Akureyri í september 2017 og var sýnt þar fyrir fullu húsi heilar 32 sýningar áður en verkið fór suður yfir heiðar. Kvenfólk hefur því gengið fyrir fullu húsi i yfir 80 sýningar og er komið á fjalirnar þriðja leikárið í röð.  

Dúettinn Hundur í óskilum skipaður þeim Hjörleifi Hjartarsyni og Eiríki Stephensen hefur vakið athygli fyrir meinfyndnar og hárbeittar sagnfræðlegar tónlistarsýningar sínar og unnið til fjölmargra grímuverðlauna - og tilnefninga. Í Kvenfólki draga þeir fram átakanlega, en um leið drepfyndna, sögu kvenna og kvennabaráttu á Íslandi sem lætur engan ósnortinn.

Við fögnum þessari frábæru velgengni sýningarinnar og óskum öllum aðstandendum til hamingju. 

Ekki láta þennan drepfyndna söngfyrirlestur framhjá þér fara, síðustu sýningar komnar í sölu!