Borgarleikhúsið

Leikritið Tvískinnungur gefið út á bók

20 des. 2018

Leikritið Tvískinnungur eftir Jón Magnús Arnarsson hefur verið gefið út á bók sem hluti af bókaútgáfu Borgarleikhússins. Leikritið var sýnt á Litla sviði Borgarleikhússins fyrir stuttu með þeim Haraldi Ara Stefánssyni og Þuríði Blævi Jóhannsdóttur í aðalhlutverki. 

Leikstjóri var Ólafur Egill Egilsson. Leikhúsrýnir Víðsjár sagði m.a. að með Tvískinnungi væri nýr tónn sleginn í íslenskum leikhúsum. 

Áður hafa verið gefin út leikritin Kartöfluæturnar, Auglýsing ársins og Bláskjár einnig eftir Tyrfing Tyrfingsson, Sending eftir Bjarna Jónsson, Flóð eftir Hrafnhildi Hagalín og Björn Thors og Hystory eftir Kristínu Eiríksdóttur.

Bókaútgáfan er mikilvægur þáttur í þeirri stefnu Borgarleikhússins að efla íslenska leikritun og styrkja stöðu hennar til framtíðar með útgáfu verkanna í varanlegu og eigulegu formi. Borgarleikhúsið stefnir að því að gefa út þrjú til fjögur verk á hverju leikári en Þorvaldur Kristinsson bókmenntafræðingur annast útgáfuna fyrir hönd leikhússins. Listakonan Kristín Gunnarsdóttir hannar kápu og annast umbrot.

Hægt er að kaupa bækurnar í miðasölu og forsal Borgarleikhússins og verslunum Pennans Eymundsson auk Bóksölu stúdenta í Háskóla Íslands.

Þá hefur Leikritaklúbbur Borgareikhússins hafið göngu sína og fá meðlimir klúbbsins veglegan afslátt og fría heimsendingu. Sendu okkur póst á leikritaklubbur@borgarleikhus.is