Borgarleikhúsið

Myndband frá fjölmennum kynningarfundi

2 sep. 2019

Kynningarfundur um komandi leikár var haldinn á Stóra sviði Borgarleikhússins í gær, sunndaginn 1. september. Þetta var í þriðja skiptið sem slíkur viðburður er haldinn til að kynna nýtt leikár og hefur verið gríðarlega ánægja með hann. 

Fjölmenni var á fundinum í gær þar sem Kristín Eysteinsdóttir kynnti alla viðburði sem verða í Borgarleikhúsinu í vetur auk þess sem leikstjórar kynntu valin verk ítarlega. Þar sagði Kristín Jóhannesdóttir frá verkinu Eitur, Bergur Þór Ingólfsson frá Sex í sveit, Brynhildur Guðjónsdóttir og Valur Freyr Einarsson frá Vanja frænda, Ágústa Skúladóttir og Haraldur Ari Stefánsson frá Gosa og Ólafur Egill Egilsson frá Níu lífum, söngleiknum með tónlist Bubba Morthens.

Einnig fluttu þau Agnar Már Magnússon og Rakel Björk Björnsdóttir tvö lög fyrir gesti. Fyrst lagið Kotið úr söngleiknum Matthildur, en Rakel syngur það lag einmitt í sýningunni, og svo lagið Rómeó og Júlía eftir Bubba Morthens. Rakel mun einnig leika í söngleiknum Níu líf þar sem fjölmargir leikara munu túlka lög Bubba.

Hægt er að horfa á upptöku frá öllum fundinum hér að neðan.

Kynningarfundur 2019