Borgarleikhúsið

Myndband við Heyr mína bæn

31 ágú. 2018

Katrín Halldóra Sigurðardóttir og félagar mæta aftur á Stóra sviðið Borgarleikhússins í kvöld, föstudagskvöldið 31. ágúst, þegar sýningar á Elly hefjast á ný. Af því tilefni frumsýnum við nýtt myndband við lagið Heyr mína bæn og má sjá það hér að neðan.
Lagið er eitt af vinsælli lögum Ellyjar Vilhjálms og er hér í útsetningu sem var gerð fyrir sýninguna. Þessa útsetningu má finna á vinsælum geisladiski með tónlistinni úr sýningunni en aðstandendur sýningarinnar fengu gullplötu fyrir diskinn fyrr á þessu árin. Lagið er flutt af Kartínu Halldóru og hljómsveit sýningarinnar en hana skipa Aron Steinn Ásbjarnarson, Björn Stefánsson,
Guðmundur Óskar Guðmundsson, Sigurður Guðmundsson og Örn Eldjárn.
Myndbandið var unnið í samstarfi við Falcor.

Elly - Heyr mína bæn