Borgarleikhúsið

Taktu hópinn með í leikhús

3 okt. 2022

Borgarleikhúsið býður upp á margs konar tækifæri fyrir fullkomna kvöldstund með starfsmannahópnum! 


Við vekjum athygli á Bara smástund með Þorsteini Backmann í aðalhlutverki sem er sprenghlægilegur gamanleikur og frábær skemmtun fyrir starfsmannahópa sem langar að lyfta sér upp saman.

Í vetur verða 14 frumsýningar á nýjum verkum og sex verk halda áfram frá fyrra leikári. Allir ættu því að finna eitthvað við sitt hæfi og er hægt að upplifa Níu líf Bubba Morthens í stórkostlegum fimm stjörnu söngleik, gráta úr hlátri yfir Bara smástund!, fylgjast með bestu leikurum landsins í sýningunni Mátulegir eða dást að einleik Sigrúnar Eddu í verkinu Á eigin vegum.

Fyrir þá sem vilja njóta leikhústöfranna með börnunum sínum bjóðum við upp á söguna um uppátækjasama og hjartahlýja drenginn, Emil í Kattholti auk annarra sýninga.
Hafir þú áhuga sendu okkur þá endilega línu á midasala@borgarleikhus.is.