Borgarleikhúsið

Tvískinnungur frumsýndur í kvöld

9 nóv. 2018

Leikritið Tvískinnungur eftir Jón Magnús Arnarsson, verður frumsýnt á Litla sviði Borgarleikhússins í kvöld, föstudagskvöldið 9. nóvember. Tvískinnungur er fyrsta leikrit Jóns Magnúsar og byggir skuggalega á lífi hans og reynslu þegar ábyrgðarleysi og almennt sinnuleysi réðu ferðinni.

Ofurhetjurnar Iron Man og Svarta ekkjan hittast í partýi; og ekki er augljóst hvort þar mætast óvinir eða elskendur. Tvískinnungur er einvígi tveggja. Þau stíga inn í hringinn vopnuð tungumáli sem særir og tælir. Haltu mér, slepptu mér...  Rím, slangur, ný orð. Spenna, fiðringur og fegurð… Undir hálfrímuðum texta ljóðaslammsins kraumar ólgandi undiralda, tilfinninga og þráhyggju og djúp og einlæg tjáningarþrá.  Það liggur allt undir í leit að sannleikanum áður en hann hverfur í grámóskuna.

Töfrar Litla sviðs Borgarleikhússins eru nýttir til hins ítrasta í leikmynd, búningum, vídjói og lýsingu og ekki síst í leik sem liðast upp undir rjáfur leiksviðsins og það reynir hressilega á leikarana ungu, Þuríði Blævi Jóhannsdóttur og Harald Ara Stefánsson, bæði líkamlega og andlega. 

Leikarar í sýningunni eru þau Haraldur Ari Stefánsson og Þuríður Blær Jóhannsdóttir. Leikstjóri er Ólafur Egill Egilsson og Vala Kristín Eiríksdóttir er aðstoðarleikstjóri.

Sigríður Sunna Reynisdóttir sér um leikmynd og búninga, Þórður Orri Pétursson um lýsingu, Young Nazareth, tónlist, Katrín Ingvadóttir, sviðshreyfingar, Margrét Benediktsdóttir, leikgervi, Garðar Borgþórsson, hljóðmynd og Elmar Þórarinsson, myndband.

Stikla