Borgarleikhúsið

Starfsfólk

Hannes Þór Egilsson

Hannes Þór Egilsson útskrifaðist frá London Contemporary Dance School árið 2006 og var í framhaldinu fastráðinn dansari hjá Íslenska dansflokknum næstu sjö árin. Hann hefur síðan starfað sem dansari og danshöfundur með ýmsum listhópum og m.a. gert sýningarnar vinsælu um Óð og Flexu með ÍD. Þá tók hann þátt í sýningunni BLAM! undir stjórn Kristjáns Ingimarssonar sem hefur verið sýnd víða um heim. Einnig hefur Hannes sinnt danskennslu m.a. í Listdanskóla Íslands og hjá Íslenska dansflokknum. Hann hefur verið tilnefndur til Grímuverðlauna bæði sem dansari og danshöfundur.