Borgarleikhúsið

Gísli Örn tekur við einu af aðalhlutverkunum í Elly

1 nóv. 2018

Gísli Örn Garðarsson mun fylla skarð Hjartar Jóhanns Jónssonar í leikritinu Elly í Borgarleikhúsinu frá og með fimmtudeginum 29. nóvember. Hjörtur er önnum kafinn í öðru verkefni leikhússins. Gísli Örn er vel kunnugur verkinu þar sem hann skrifaði það ásamt Ólafi Agli Egilssyni og leikstýrði því.

Gísli tekur að sér nokkur hlutverk og mun hann m.a. leika Eyþór Þorláksson og Svavar Gests, en þessir menn voru eiginmenn Ellyjar, - sá fyrsti og sá þriðji. Hjörtur þarf frí frá sýningunni í desember þar sem hann mun leika Ríkharð III í samnefndu leikriti Shakespeares sem verður jólasýning Borgarleikhússins.

Fyrsta sýning Gísla verður fimmtudaginn 29. nóvember og mun hann leika í sýningunni út árið. Þetta er í fyrsta skipti í nokkur ár sem hann stígur á svið á Íslandi. Að undanförnu hefur hann mestmegnis leikstýrt verkum í leikhúsi og leikið í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum bæði hérlendis og erlendis.

Sýningin um Elly Vilhjálms var frumsýnd í Borgarleikhúsinu í mars árið 2017 og hefur síðan þá verið sýnd rúmlega 160 sinnum sem gerir hana að vinsælustu íslensku sýningu allra tíma. Áhorfendur eru orðnir rúmlega 75 þúsund og virðist ekkert lát vera á vinsældum.

Katrín Halldóra Sigurðardóttir, sem hefur slegið í gegn í hlutverki Ellyjar, og aðrir leikarar verða áfram á sínum stað. Sýningar í desember eru komnar í sölu og hægt að tryggja sér miða í síma 568-8000 og hér .