Stúlkan sem stöðvaði heiminn
- Litla sviðið
- 50 mín.
- Verð: 4.200 kr.
- Sýningum lokið
Ég get búið til allt…
Sól, stjörnur, fólk, jafnvel frumur.
Allt er úr sama efninu. Ég og þú, hundaskítur og geimryk.
Ég hef tekið eftir að litlir hlutir eru stórir og stórir hlutir litlir.
Að blóðið rennur eins og jökulá og hár vex eins og gras.
Stúlkan sem stöðvaði heiminn
Allt er úr sama efninu. Ég og þú, hundaskítur og geimryk.
Getur orðið til töfrandi ævintýraheimur úr ruslinu sem við hendum? Endurvinnsla, undirvitund, umbreyting.
Hvað gerir stúlka sem þarf að finna sig á nýjum stað? Til að takast á við stórar áskoranir þarf oft hugrekki til að kafa niður á órætt dýpi. Stúlkan sem stöðvaði heiminn er hrífandi myndræn upplifun fyrir stóra og smáa. Stórkostlegur sköpunarkraftur helst í hendur við kraumandi ímyndunarafl! Áhorfendur eru leiddir úr einni veröld í aðra sem eru hver annarri forvitnilegri, furðulegri og fallegri. Saga stúlkunnar er ófyrirsjáanleg og spennandi en á sama tíma notalega kunnugleg. Töfrandi saga og ævintýraleg upplifun!
Samstarf við leikhúsið 10 fingur.
Leikhópurinn 10 fingur hefur um árabil lagt áherslu á að gera sýningar sem börn og fullorðnir geta notið saman. Þau hafa sérhæft sig í listsköpun á mörkum leikhúss og myndlistar og má þar meðal annars nefna sýningarnar "Skrímslið litla systir mín" og "LÍFIÐ - stórskemmtilegt drullumall” sem mörgum eru minnistæðar fyrir óvænta leikhústöfra og ljóðrænt sjónarspil sem snertir um leið við áhorfendum.
Leikarar
Benedikt Karl Gröndal
Kjartan Darri Kristjánsson
Sólveig Guðmundsdóttir
Listrænir stjórnendur
Höfundar
10 fingurLeikstjórn
Helga ArnaldsLeikmynd og myndheimur
Eva Signý Berger
Helga Arnalds
Búningar
Eva Signý BergerAðstoðarleikstjórn
Sigríður Sunna ReynisdóttirTónlist og hljóðmynd
Valgeir SigurðssonSviðshreyfingar
Katrín GunnarsdóttirHönnun lýsingar og tæknistjórnun
Fjölnir Gíslason
Búningasaumur
Alexía Rós GylfadóttirFramkvæmda- og kynningastjórn
Alexía Björg JóhannesdóttirFræðsluefni
Alexía Rós Gylfadóttir
Ýr Jóhannsdóttir