Borgarleikhúsið

ÞEL

  • Nýja sviðið
  • Sýningum lokið
  • Sýningum á ÞEL er lokið. Við þökkum fyrir góðar viðtökur.
  • Kaupa kort

ÞEL er lífvera og líkami hóps. Hóps sem fléttast saman, hlustar og leitar að samstöðu í gegnum endurteknar umfaðmandi athafnir í hreyfingum og söng og skapa þannig samhug og nánd sín á milli.

ÞEL

ÞEL er lífvera og líkami hóps. Hóps sem fléttast saman, hlustar og leitar að samstöðu í gegnum endurteknar umfaðmandi athafnir í hreyfingum og söng og skapa þannig samhug og nánd sín á milli.

ÞEL er lífrænt mjúkt og brothætt handverk, líkamlegt landslag.

Íslenski dansflokkurinn frumsýnir 20. september ÞEL, nýtt íslenskt dansverk eftir Grímuverðlaunahafann Katrínu Gunnarsdóttur.

Katrín Gunnarsdóttir er íslenskum dansunnendum vel kunn enda hefur hún svo sannarlega lagt sitt af mörkum í þróun samtímadans á Íslandi undafarin ár. Katrín hefur hlotið fjölmargar tilnefningar til Grímuverðlaunanna og þrívegis hlotið þau; sem Danshöfundur ársins 2018 fyrir Crescendo, Dansari ársins 2017 fyrir Shades of History og Danshöfundur ársins 2013 ásamt Melkorku Sigríði Magnúsdóttur fyrir Coming Up. Katrín hefur einnig tvívegis verið tilnefnd til Menningarverðlauna DV (2015 og 2016) og tilnefnd í TANZ magazine (2017) ásamt Marmarabörnum fyrir sýninguna Moving Mountains.

Verk Katrínar hafa verið sýnd víða um Evrópu ásamt því að hún hefur verið danshöfundur í sýningum hjá Þjóðleikhúsinu, Theatre Republique í Danmörku, Íslensku Óperunni og Toneelgroep í Amsterdam. 

Listrænir stjórnendur

  • Danshöfundur

    Katrín Gunnarsdóttir

  • Búningar og sviðsmynd

    Eva Signý Berger

  • Tónlist

    Baldvin Þór Magnússon

  • Dansarar

    Elín Signý Weywadt Ragnarsdóttir
    Erna Gunnarsdóttir
    Ernesto Camilo Aldazabal Valdes
    Halla Þórðardóttir
    Sigurður Andrean Sigurgeirsson
    Shota Inoue
    Una Björg Bjarnadóttir