Borgarleikhúsið

Um hvað syngjum við

  • Stóra sviðið
  • Verð: 5.900 kr.
  • Frumsýning 8. febrúar
  • Væntanleg
  • Miðasala er ekki hafin á sýninguna Um hvað syngjum við. Nánari upplýsingar verða birtar síðar.
  • Kaupa kort

Um hvað syngjum við er hrífandi og skemmtilegt dansverk eftir hin velkunna danshöfund Pieter Ampe.

Um hvað syngjum við

Um hvað syngjum við er hrífandi og skemmtilegt dansverk eftir hin velkunna danshöfund Pieter Ampe.

“In the dark times
Will there also be singing?
Yes, there will also be singing.
About the dark times.” 
― Bertolt Brecht

Belgíski danshöfundurinn Pieter Ampe elskar að liggja nakinn í snjónum, dansa í villtum partýum og syngja undir stýri.
Og tilhugsunin um björn sem jogglar eplum á einhjóli er fyndin.
Þykir sumum.
Öðrum finnst hún sorgleg.

Að vetri til, í myrkri og drungalegu veðri, lítur fólk einmitt inn á við.

Fleygir sér ekki bara allsbert í snjóinn og fer í partí eða keyrir fram og tilbaka í bíl.
Það veit Pieter.
Nú hefur hann hitt dansara Íslenska dansflokksins, þau Elínu, Andrean, Tilly, Charmene, Felix, Shota, Ernu og Unu.
Sum þeirra eru frá Íslandi, önnur eru lengra að komin, en öll nota þau tækifærið til að líta í eigin barm og spyrja sig spurninga.
Þau skiptast á spurningum, þau dansa þær og syngja.
Því þau hafa öll sögu að segja.
Og hvað er fallegra en að syngja saman á meðan niðadimm nóttin líður hjá?

Listrænir stjórnendur

  • Dansarar

    Charmene Pang
    Elín Signý Weywadt Ragnarsdóttir
    Erna Gunnarsdóttir
    Félix Urbina Alejandre
    Sigurður Andrean Sigurgeirsson
    Tilly Sordat
    Una Björg Bjarnadóttir
    Shota Inoue 

  • Hugmynd

    Pieter Ampe

  • Danshöfundur

    Pieter Ampe í samvinnu við dansara Íd

  • Tónlist

    Pieter Ampe

  • Lýsing

    Valdimar Jóhannsson

  • Hljóð

    Baldvin Þór Magnússon

  • Búningar

    Þyri Huld Árnadóttir